Dagsetning
24. september 2026 27. september 2026
Staðsetning
Hulduland - Laugarnes
Deild
Myndlistardeild

Júlía Óskarsdóttir
Einkasýning í Huldulandi
Opnun 24. september 17:00 – 19:00
Einnig opið 25. sept. 13-17, 26. sept. 13-17 & 27. sept. 13-15
——

Það er leynistjarna í herberginu; andi sem skilinn var eftir eða er á leiðinni. Þegar skipt er um búning kemur alltaf augnablik þegar þú ert bara þú. Rými hefur nærveru, skuggaveran dansar og er ekki að gera neitt sérstakt til að ganga í augun á þér, heldur er hún bara að dansa. Ósýnileg hönd réttir fram hugmynd og Júlía hafnar henni og hafnar henni, en ósýnilega höndin gefst ekki upp fyrren Júlía hlýðir.

Júlía Óskarsdóttir (f. 2003) vinnur innsetningar og gjörninga innblásin af leikhúslistinni og danshefðinni.
——

Sýningin er partur af einkasýningaröð BA nemenda á þriðja ári í myndlist sem fara fram á tímabilinu 17. september – 26. nóvember 2026. Einkasýningar nemenda er liður í námskeiðinu Vinnustofur prófessora í umsjón Heklu Daggar Jónsdóttur, Ólafar Nordal & Páls Hauks Björnssonar. Kennarar og leiðbeinendur eru Sabine Fischer, Una Björg Magnúsdóttir & Unnar Örn Jónasson Auðarsson.

Nánari upplýsingar um einkasýningaröðina má finna HÉR.

Facebook viðburður