Dagsetning
30. október 2026 – 31. október 2026
Tími
18:00
Staðsetning
Gallery Rýmd, völvufell 17, 111 Reykjavík
Deild
Hönnunardeild
Þegar þangað verður hér

Þegar þangað verður hér er samsýning þriðja árs nema í vöruhönnun sem sýnir afrakstur áfangans Fókus.

Þegar þangað verður hér er samsýning þriðja árs nema í vöruhönnun sem sýnir afrakstur áfangans Fókus. Þar fengu nemendur tækifæri til að vinna að sameiginlegu viðfangsefni undir handleiðslu Rúnu Thors. Nemendur völdu í sameiningu viðfangsefnið Útilega og unnu út frá því fjögur ólík verkefni sem deila sama þræði.

Útilegan er rótgróinn partur af menningu Íslendinga. Í gegnum áranna rás hefur hún þróast og breyst en mikilvægi hennar minnkar aldrei. Útilegan er margþætt, hún getur verið nákvæmlega það sem þú vilt að hún sé. Í þessari sýningu leggja fjórir hópar af stað í leiðangur til að rannsaka, kortleggja og varpa nýju ljósi á útileguna sem hugtak.

Opnun sýningarinnar er 30 október milli klukkan 18 og 21. í Gallery Rýmd Völvufelli 17, 111 Reykjavík.

Þá er sýningin einnig opinn 31 október milli 13 og 17.