+ Bæta við
BA3 einkasýning í Naflanum
Opnun 5. nóvember 17:00 – 19:00
Einnig opið 7. & 8. nóvember 15:00 – 18:00
——
Form verður til og aðlagast öðrum.
Endurtekur sig og nýtt form verður til og minnist þess sem var, en vísar um leið í það sem verður.
Endurtekur sig og nýtt form verður til og skyndilega er fortíðin ekki lengur röð endapunkta heldur samansafn upphafspunkta.
Endurtekur sig og knýr myndunina áfram.
Í hverri endurtekningu lítil breyting sem leiðir til nýs forms.
Endurtekning verður endurminning um framtíðina.
Núið steypist fram fyrir sjálft sig inn í hið ófyrirsjáanlega.
Tilfinningar, augnablik og hugsun eru form í verkum Dýrunnar. Hún vinnur með togstreituna milli þess sem var og þess sem gæti orðið. Að fanga það sem er óáþreifanlegt í fast form, eða túlka það efnislega. Í smæstu brotum og einingum búa endalausir möguleikar umbreytinga.
Dýrunn vinnur með fjölbreytt efni en ávallt með formkenndina að leiðarljósi.
Fundnir hlutir, leir, gifs, texti, teikning, stál og sál.
——
Sýningin er partur af einkasýningaröð BA nemenda á þriðja ári í myndlist sem fara fram á tímabilinu 17. september – 26. nóvember 2026. Einkasýningar nemenda er liður í námskeiðinu Vinnustofur prófessora í umsjón Heklu Daggar Jónsdóttur, Ólafar Nordal & Páls Hauks Björnssonar. Kennarar og leiðbeinendur eru Sabine Fischer, Una Björg Magnúsdóttir & Unnar Örn Jónasson Auðarsson.
Nánari upplýsingar um röðina má finna HÉR.