Við tunglið erum nágrannar / Nehna wel amar jeeran
Tónleikar í Mengi á Fjölmenningardegi Reykjavíkurborgar, miðvikudagskvöldið 10. maí.
English below
Fram koma líbanska tónskáldið Imad Mohammad El Turk, söngur, píanó og oud, Ásgeir Ásgeirsson, oud og bouzouki, Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir á fiðlu, Erik Quick á trommur og Alexandra Kjeld á kontrabassa.
Á efnisskrá eru grísk og líbönsk þjóðlög og tónlist eftir Imad Mohammad El Turk sem hefur verið búsettur hérlendis undanfarna sex mánuði og óskað eftir dvalarleyfi á Íslandi.