Meistaranám í Listum og velferð miðar að því að leiða saman breiðan hóp nemenda og fagfólks innan lista- og velferðargeirans sem hafa áhuga á að þróa leiðir til að nýta listir í þágu félags- og heilsueflingar. Markmiðið með náminu er að fjölga snertiflötum listanna við samfélagið og auka aðgengi og þátttöka ólíkra hópa í listtengdum verkefnum og viðburðum. Áhersla er á að þróa nýjar leiðir í þverfaglegri samvinnu stofnana, félagasamtaka og listamanna, í störfum sem fara fram við síbreytilegar aðstæður með fjölbreyttum hópi einstaklinga.
Námið byggir á fjölbreyttum námsskeiðum, sem m.a. fjalla um kenningar um inngildingu, listmeðferðarfræði, listir í samfélaginu og ólíkar rannsóknaraðferðir, auk þess sem nemendur sækja vinnustofur og stunda vettvangsnám. Meistaranámi í Listum og velferð er ætlað að styðja við einstaklingsbundinn áhuga nemenda, byggja á reynslu þeirra og fyrra námi. Lagt er upp með sjálfstæðar starfstengdar rannsóknir þar sem hver nemandi þróar sína eigin leið í gegnum námið og byggir lokaverkefni sitt á persónulegum faglegum áhuga, reynslu og framtíðarsýn. Þannig miðar námið að því að styrkja einstaklingsbundna færni nemenda til teymisvinnu í samstarfi við vettvang. Í gegnum aðferðir lista og með samvinnu faggreina og ólíkra hópa samfélagsins mótum við nýjar leiðir til aukinnar velferðar. Nemendur munu þróa stjórnunarhæfni sína, getu til að ígrunda á gagnrýninn hátt og færni til að taka þátt í samstarfsverkefnum í ólíku félagslegu samhengi. Námið miðar þannig að því styðja við borgaralega þátttöku og félagslega ábyrgð nemenda og stofnana í átt að inngildingu.
Um er að ræða tveggja ára 120 eininga staðnám. Nemendur útskrifast ýmist með M.Art.-gráðu (stig 6.1) eða MA-gráðu (stig 6.2, rannsóknargráða). MA-gráða veitir aðgang að frekara námi á doktorsstigi.
Kennslutungumál er íslenska
Aðgangsviðmið
BA-gráða í listum eða bakkalárgráða í heilbrigðisvísindum og talsverð menntun og/eða reynsla í einhverri listgrein. Áhugi og reynsla af vinnu með viðkvæmum hópum er skilyrði.
Nánar um uppbyggingu námsins
Lokaverkefni
Lokaverkefni geta verið í formi rannsóknar eða viðburðar. Í öllum tilfellum skal rannsóknin eða verkefnin vera tengd og byggð á verklegri og listrænni vinnu með völdum hópi í samfélaginu.
*Námsbrautin hefur hlotið styrk til þróunar frá Erasmus+ áætluninni í samstarfi við University of Porto, University of Alicante, University of Hertfordshire, Academy of Fine Arts in Munich, Metropolia University of Applied Sciences in Helsinki, and AEC (The Association Européenne des Conservatoires, Académies de Musique et Musikhochschulen.