Raunfærnimat í grunnnámi við Listaháskóla Íslands
Raunfærnimat hefur það markmið að auðvelda fólki á vinnumarkaði sem hefur starfsreynslu að stunda nám og afla sér réttinda á skemmri tíma. Þannig er betur hægt að mæta þörfum samfélagsins og vinnumarkaðarins.
Af hverju raunfærnimat?
Raunfærnimat veitir viðurkennningu á þekkingu sem einstaklingur öðlast í gegnum
störf, nám og daglegt líf. Þekkingin getur hafa orðið í til í gegnum námskeið,
félagsstörf eða starfsreynslu. Með því að fara í raunfærnimat geta einstaklingar stytt
námstíma sem bæði getur dregið úr álagi og aukið hvata til frekara náms.
Fyrir skólaárið 2025-2026 er boðið upp á raunfærnimat í:
- Ákveðnum námskeiðum í grafískri hönnun
- Ákveðnum námskeiðum í fatahönnun
Skilyrði fyrir umsókn um raunfærnimat:
- Vera nemandi í LHÍ
- 25 ára og eldri
- Allt að þriggja ára starfsreynsla í faginu
- Starfsreynsla vottuð frá vinnuveitanda
Ferlið
- Umsækjandi fyllir út skimunarlista til að meta eigin færni í tengslum við
raunfærnimatið. - Umsækjandi sendir eftirfarandi gögn á verkefnastjóra.
- Ferilskrá
- Skimunarlista
- Vottorð frá vinnuveitanda
- Þegar verkefnastjóri hefur staðfest gögnin fer umsækjandi í viðtal hjá náms-
og starfsráðgjafa - Umsækjandi fær boð um að koma í viðtal hjá matsaðila.
Ef þú ert með spurningar getur þú hafst samband við:
Ragnhildi Ísleifs Ólafsdóttur – Náms- og starfsráðgjafi ragnhildur@lhi.is
Adam Flint Taylor – Fagstjóri í grafískri hönnun adam@lhi.is
Ragna Sigríður Bjarnadóttir – Fagstjóri í fatahönnun ragnabjarnadottir@lhi.is
Sigríður Hallgrímsdóttir – Verkefnastjóri raunfærnimats sirry@lhi.is
Um Raunfærnimat
Haustið 2023 hófst undirbúningur hjá Listaháskóla Íslands í samvinnu við aðra háskóla við að móta sameiginlegt matsferli sem mun nýtast öllum háskólum landsins við raunfærnimat til styttingar náms.
Verkefnið er einnig unnið í samstarfi við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins. Matsaðilar fara á námskeið og fá vottun í framkvæmd á raunfærnimati.
Spurningar um þetta efni?
Hafðu samband við skrifstofu skólans og við komum fyrirspurninni til réttrar deildar eða sviðs.