Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á ÍslenskuStaðfest afrit af prófskírteini/námsferli, er skjal frá þeim skóla sem umsækjandi útskrifaðist úr. Skjalið þarf að vera skannað frumrit eða staðfest afrit með stimpli og undirskrift frá viðkomandi skólaskrifstofu, þar sem kemur fram listi yfir námskeið, einingar og einkunnir.
Hægt er að skila inn námsferilsblaði frá skrifstofu þess skóla sem umsækjandi stundar nám við, sem sýnir námsframvinduna og staðfestingu á fyrirhugaðri útskrift. Gögnunum er hlaðið upp í umsóknarformið. Prófskírteini þarf síðan að skila inn til skólans í júní fái umsækjandi inngöngu.
Sjá upplýsingar um skrásetningargjald.
Umsækjendum sem er boðin skólavist við skólann, greiða skrásetningargjald í umsóknargátt, undir flipanum – Yfirlit umsókna.
Auðkenni að námskerfum skólans (Uglu, Canvas og fl.) er sótt í umsóknargátt þegar skrásetningargjald hefur verið greitt. Umsækjandi sem hefur verið samþykktur inn í skólann og greiðir skrásetningargjald innritast sjálfkrafa eftir greiðslu skrásetningargjaldsins í umsóknargátt. Þegar greiðslan hefur verið framkvæmd, birtist flipi í umsóknargátt þar sem viðkomandi þarf að sækja auðkenni sitt (notendanafn og lykilorð).
Nám í Listaháskólanum er staðarnám og er kennt á dagvinnutíma með undantekningum hjá einstaka brautum. Mætingaskylda er í Listaháskólanum.