Frjáls trefjavinnsla

Verkefnið snýst um að koma á framfæri opnum vélbúnaði sem vinnur plöntutrefjar til að búa til þrívíða hluti, pappír og trefjaplötur. Markmiðið er búa til vettvang fyrir fólk með mismundi bakgrunn til að skapa úr plöntum. Teikningar og annað tengt vélbúnaðinum er gert aðgengilegt á netinu, í von um að samfélag myndist í kringum verkefnið þar sem fólk heldur áfram að þróa vélbúnaðinn og aðferðir tengdar honum. Verkfæri sem hönnuðir og handverksmenn nota nú til dags er mikið til opinn vélbúnaður, til dæmis þrívíddarprentarar og tölvustýrðir fræsarar. Opinn vélbúnaður hefur opnað fyrir mikla möguleika í sköpun, ásamt því sem hann hefur skapað umræðu um vannýttar auðlindir.

8._arngrimur_gudmundsson_arngrimur18lhi.is-14.jpg