Sunnudaginn 4.júní fer fram verðlaunaafhending og úthlutun úr sjóði Halldórs Hansen. Viðburðurinn fer fram í tónlistarsal Listaháskóla Íslands Dynjandi, Skipholti og hefst kl.16:00

Halldór Hansen barnalæknir lét eftir sig mikið tónlistarsafn með um 10.000 hljómplötum, sem hann ánafnaði Listaháskólanum í erfðaskrá ásamt öðrum eigum sínum
sem skyldu renna í sérstakan sjóð í hans nafni.Meginmarkmið sjóðsins er að styrkja uppbyggingu og styðja við tónlistarsafn Listaháskóla Íslands og veita árlega styrk
til framúrskarandi tónlistarnema.

Stjórn sjóðsins mynda þau Fríða Björk Ingvarsdóttir, rektor Listaháskóla Íslands og formaður, Árni Tómas Ragnarsson, læknir og ritari og
Tryggvi M Baldvinsson, deildarforseti tónlistardeildar Listaháskóla Íslands og meðstjórnandi.

Dagskrá: