Góð hönnun er fyrir alla
Málstofur um aðgengi

Málstofur um aðgengi verða haldnar miðvikudagana 23. nóvember, 30. nóvember og 7. desember kl 12:15 – 13:30 í arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands að Þverholti 11, fyrirlestrarsal A í kjallara. 
 
Þátttaka er opin öllum.
Léttar veitingar í boði. 
 
23. nóvember
AÐGENGISMÁL Á BAÐSTÖÐUM
Málstofa á vegum AÍ + HMS + ÖBÍ
Erindi: 
  • Heba Hertervig arkitekt hjá VA arkitektum
  • Harpa Cilia Ingólfsdóttir byggingafræðingur og ráðgjafi í algildri hönnun hjá HMS
  • Margrét Lilja Aðalsteinsdóttir formaður Sjálfsbjargar Landssamband Hreyfihamlaðra.

 

7. desember
HOPPAÐU BARA ÚT Í! NÁTTÚRUBAÐSVÆÐI OG AÐGENGISMÁL 
Málstofa á vegum FÍLA + HMS + ÖBÍ

Erindi:

  • Ómar Ingþórsson frá EFLU, landslagsarkitekt FÍLA
  • Harpa Cilia Ingólfsdóttir, byggingafræðingur og ráðgjafi í algildri hönnun hjá HMS
  • Birna Einarsdóttir, stjórnarmaður Gigtarfélags Íslands
 
Málstofur um aðgengi er liður í samstarfi um upplýsingagjöf um algilda hönnun. 
Þann 5. maí s.l. var undirrituð samstarfsyfirlýsing ÖBÍ réttindasamtaka, Arkitektafélags Íslands (AÍ), Félags íslenskra landslagsarkitekta (FÍLA), Félags húsgagna- og innanhússarkitekta (FHI), Byggingafræðingafélags Íslands (BFÍ) og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) um bætta upplýsingagjöf í aðgengismálum fyrir hönnuði í mannvirkjagerð.
Með samstarfi þessu er opnað á nauðsynlegt samtal með því markmiði að allir geta notið hins manngerða umhverfis. Þannig er stuðlað að meira jafnrétti fatlaðra og ófatlaðra í hinu daglega lífi.
 
*Viðburðunum verður streymt á live.lhi.is