- Bókasafn LHÍ er einkum ætlað nemendum, kennurum og öðru starfsfólki skólans, en er jafnframt opið öðrum sem sérfræðisafn á sviði lista.
- Öllum er heimilt að heimsækja safnið á auglýstum afgreiðslutíma þess og kynna sér endurgjaldslaust þau gögn sem þar er að finna. Þeir sem vilja nýta sér útlán á gögnum greiða árgjald samkvæmt gjaldskrá.
- Í safninu er veitt öll almenn bókasafnsþjónusta, s.s. útlán, millisafnalán, upplýsingaþjónusta og aðstoð við heimildaleit og leggur starfsfólk áherslu á góða og vandaða þjónustu.
- Allir sem koma á safnið og nýta sér þjónustu þess eru hvattir til að kynna sér útlánsreglur þar sem fram koma upplýsingar um útlánstíma gagna, endurnýjun, frátektir o.fl.
- Gott úrval bóka, tímarita, nótna, leikhandrita og annars efnis er í öllum útibúum safnsins.
- Safnið útvegar millisafnalán fyrir nemendur og kennara frá öðrum söfnum, á efni sem ekki er fáanlegt á bókasafni LHÍ. Gjald er tekið fyrir millisafnalán samkvæmt gjaldskrá.
- Nemendur og kennarar geta komið með tillögur að innkaupum á efni með því að tala við fagstjóra sinnar deildar.
Allar nánari upplýsingar má fá hjá okkur á staðnum, í síma 545 2217 eða á netfanginu bokasafn [at] lhi.is