Ungir einleikarar 2022

Keppnin Ungir einleikara fer nú fram í nítjánda sinn. Keppnin hefur verið árlegur viðburður frá árinu 2004 og byggir á samstarfi Listaháskóla Íslands og Sinfóníuhljómsveitar Íslands. 
Keppnin fer fram í tveimur umferðum í ár. Í fyrri umferð eru umsækjendur  metnir eftir innsendum myndbandsupptökum og 
þeir umsækjendur sem komast áfram eru boðaðir í aðra umferð keppninnar dagana 22.og 23.október. 
Sigurvegarar koma fram á tónleikunum Ungir einleikarar ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands þann 13.janúar 2022. 

Umsóknarfrestur til þátttöku í ár rennur út á miðnætti þann 1.október 2021. 
Umsóknareyðublað og frekari upplýsingar um keppnina má finna hér.

ungir_einleikarar_augl.png
Sigurvegarar Ungra einleikara 2021 ásamt hljómsveitarstjóranum Anna-Maria Helsing.