Í SÍKVIKRI MÓTUN: VITUND OG NÁTTÚRA 

Kinaassuseq allanngujasoq – pinngortitaq allanngorartoq
FLYDENDE IDENTITET, NATUR I OMFORMNING 
Flótandi samleiki, náttúra í broyting 
NATURE IN TRANSITION – SHIFTING IDENTITIES 
 
Opnar í Hvelfingu Norræna hússins í Reykjavík  17. apríl kl. 10.
 
Sýningin Í síkvikri mótun: vitund og náttúra varpar fram svipmyndum af upplifunum, hugleiðingum og rannsóknum listamanna á sviði myndlistar, tónlistar, hönnunar og sviðslista, sem búa á hinum síkvika útjaðri norðursins. Náttúran mótar manngert umhverfi og hið manngerða hefur áhrif á náttúruna; hvort tveggja nú í eins konar hröðun sem okkur rekur ekki minni til að hafi átt sér stað áður.  
Stefnumót þjóðanna fjögurra minnir á mikilvæg og margslungin söguleg samskipti sem hafa mótað menningu og samfélög landanna. Umbreytingar kalla á endurskoðun fyrri viðhorfa, rýni í vitund og sjálfsmynd okkar sem einstaklinga jafn sem þjóða. Það er orsakasamhengi á milli gjörða okkar og atburða í náttúrunni; og öfugt: undir hinum langa boga náttúruafla eru einstök líf, einstök samfélög, einstakar sögur. Atburðir á Íslandi síðustu vikur, mánuði og ár minna okkur á að það er ekki stöðugleikinn sem er eðlilegt ástand, heldur hin stöðuga umbreyting alls; náttúru, manna og samfélaga.  
 
Á sýningunni eiga verk Berglind María Tómasdóttir, Bryndís Snæbjörnsdóttir & Mark Wilson, Emilie Dalum & Michael Richardt, Inuuteq Storch, Jóhan Martin Christiansen, Ólöf Nordal, Tinna Gunnarsdóttir, Rikke Luther og Thomas Pausz.  
Með þátttöku: 
Ana Luisa S. Diaz De Cossio 
Khetsin Chuchan 
 
 
Sýningarstjórar eru 
Hanna Styrmisdóttir og Hulda Stefánsdóttir 
 
Sýningin opnar 17.apríl næstkomandi og verður opið samkvæmt hefðbundnum opnunartíma frá 10-17. Opnunin verður haldin í samræmi við sóttvarnarreglur og er 20 manna fjöldatakmörkun á hverjum tíma.
 
Hvelfing, sýningarrými Norræna hússins, er opin þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17.
 
Í síkvikri mótun: vitund og náttúra er samstarfsverkefni Listaháskóla Íslands og Norræna hússins í Reykjavík og er framlag Listaháskólans til ráðstefnu UArctic (Háskóla Norðurslóða) sem verður haldin í Reykjavík í maí 2021 í tilefni af formennsku Íslands í Norðurskautsráðinu. 
Sýningin hefur hlotið styrki úr verkefnasjóði um samvinnu á Norðurslóðum á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar (Nordic Council of Ministers ) og Norræna menningarsjóðnum (Nordisk Kulturfond). 
 
Nemendur í námskeiði í sýningagerð og sýningastjórnun við Listaháskóla Íslands tóku þátt í gerð sýningarinnar.