Föstudaginn 26. og laugardaginn 27. febrúar fer af stað röð af einkasýningum útskriftarnema í mastersnámi í myndlist við Listaháskólann. Seinna holl sýninganna fer fram helgina 12. og 13. mars.

Sýningarnar eru hluti af lokaverkefnum nemenda og eru vettvangur þar sem tækifæri gefst til að láta reyna á eigin listrænu sýn og ákvarðanatöku innan ramma námsins. Lokaverkefnin eru þáttur í tveggja ára MA námi nemenda þar sem þeir hafa þróað áfram eigin aðferðir, rannsóknir og samhengi. Í vor verður svo einnig haldin útskriftarsamsýning í Nýlistasafninu í Marshallhúsinu.

Meistaragráðan í myndlist byggist á ofangreindum einkasýningum og gagnrýnum íhugunum varðandi hana, listaverki á samsýningunni í Nýlistasafninu, faglegum vinnubrögðum ásamt meistararitgerð þar sem fram koma aðferðir, efnisinntak, samhengi og greinargerð um lokaverk. Sýningarnar eru í Kubbnum, galleríi myndlistardeildar í Laugarnesi og RÝMD, nemendagallerí myndlistardeildar í Breiðholti.

Sýningarnar eru opnar:
Kubburinn - miðvikudagur, fimmtudagur og föstudagur frá 13:00 – 17:00 í vikunni eftir opnun.
RÝMD -  sunnudagur, miðvikudagur og föstudagur 14:00 – 18:00 í vikunni eftir opnun.

Dagskrá:

26. febrúar: Brian Wyse – Kubburinn opnun kl. 17:00 - 19:00
27. febrúar: Romain Causel – RÝMD opnun kl. 17:00 - 19:00

12. mars: Helen Svava Helgadóttir – Kubburinn opnun kl. 17:00 - 19:00
13. mars: Auður Aðalsteinsdóttir – RÝMD opnun kl. 17:00 - 19:00