Bryndís H Snæbjörnsdóttir, prófessor í myndlist við myndlistardeild Listaháskóla Íslands hlaut, ásamt Mark Wilson, Íslensku Myndlistarverðlaunin fyrir útgefið efni, fyrir ritverkið Óræð lönd: Samtöl í sameiginlegum víddum. Í tilkynningu myndlistarráðs segir meðal annars: "Bókin vekur eftirtekt fyrir heildstæða og einstaklega vandaða framsetningu á innihaldsríku efni sem veitir einstaka innsýn í listhugsun Bryndísar og Marks en þau hafa verið í hópi leiðandi listamanna á sviði listrannsókna undanfarna tvo áratugi." Ritið Óræð lönd er samstarfsverkefni, gefið út í tengslum við tvær sýningar sem haldnar voru samtímis í Gerðarsafni og á Listasafninu á Akureyri haustið 2021.

Dr.Bryndís Snæbjörnsdóttir er prófessor og fagstjóri meistaranáms í myndlist og sýningargerð við Listaháskóla Íslands. Hún er jafnframt gestaprófessor við University of Cumbria í Englandi. Áður en Bryndís kom til starfa við Listaháskólann var hún prófessor við Valand Academy í Gautaborg og gestaprófessor við Malmö Art Academy. Hún hefur einnig starfað sem lektor við Glasgow School of Art. Bryndís lauk doktorsprófi frá Gautaborgarháskóla 2010.

Bryndís Snæbjörnsdóttir and Mark Wilson vinna sameiginlega að myndlistarverkum sínum. Í yfir 20 ár hafa þau unnið með þverfagleg og rannsóknartengd verkefni sem skoða sögu, menningu og umhverfi ekki bara út frá sjónarhorni mannsins heldur einnig annarra lífvera. Í vinnuferlinu eru þau oft í nánum tengslum við aðra sérfræðinga á viðkomandi sviði, hvort sem það eru fagmenn eða áhugamenn og beina þannig athygli að menningarlegum breytum og klisjum og tilheyrandi viðhorfum mannskepnunnar gagnvart vistfræði, útrýmingu, verndunarsjónarmiðum og umhverfinu.