Listaháskóli Íslands leitar eftir áreiðanlegum, skipulögðum og kraftmiklum einstaklingi í starf forstöðumanns alþjóðaskrifstofu LHÍ. Um 100% starf er að ræða. Leitast er eftir því að ráða sem fyrst í stöðuna.

Forstöðumaður starfar á sviði akademískrar þróunar, ber ábyrgð á daglegri starfsemi skrifstofunar og tekur þátt í samstarfi um alþjóðastarf innan sem utan LHÍ.

Helstu verkefni eru m.a.:
  • Umsjón með þátttöku LHÍ í Erasmus og Nordplus menntaáætlununum.
  • Upplýsingagjöf og stuðningur við nemendur sem fara erlendis í skiptinám og starfsnám.
  • Upplýsingagjöf og stuðningur við starfsmannaskipti í samráði við deildir skólans.
  • Umsjón með umsóknum og inntöku skiptinema til Listaháskólans í samráði við deildir skólans.
  • Gerð og eftirfylgni fjárhagsáætlana.
  • Starfsmannahald í samráði við sviðsforseta akademískrar þróunar.
  • Umsjón með tvíhliða samstarfssamningar við erlenda háskóla.
  • Þátttaka í innra gæðastarfi.
  • Samstarf við Rannís og landskrifstofu menntaáætlana.
  • Stefnumótun og innleiðing stefnu.
  • Önnur verkefni.
Menntun, reynsla, hæfni
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Starfsreynsla af alþjóðastarfi.  
  • Reynsla af stjórnun og teymisvinnu.
  • Mjög gott vald á íslensku og ensku.  
  • Góð almenn tölvukunnátta.
  • Framúrskarandi samskiptahæfni, jákvætt viðmót og rík þjónustulund.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.

Sótt er um starfið á ráðningarvefnum Alfred.is. Umsóknarfrestur er 25. september 2022.
Upplýsingar um starfið veitir Hulda Stefánsdóttir, sviðsforseti akademískrar þróunar, huldastefansdottir [at] lhi.is

Starfsumhverfi

Alþjóðaskrifstofa tilheyrir nýju sviði akademískrar þróunar. Því er ætlað að leiða og styðja við þróun á námi, kennslu og rannsóknum við Listaháskólann. Sviðið vinnur að þverfaglegum markmiðum, uppbygginu og þróun meistaranáms, undirbúningi doktorsnáms í listum og stefnumótun og eftirfylgni með stefnu skólans í samráði við aðra stjórnendur. Undir sviðið heyra listkennsludeild ásamt miðlægum akademískum stoðeiningum rannsókna- og kennslustuðnings, alþjóðaskrifstofu, bókasafns- og upplýsingaþjónustu og verkstæða.

Listaháskóli Íslands er sjálfseignarstofnun með viðurkenningu á fræðisviðinu listir. Starfsumhverfið er gefandi og kraftmikið samfélag nemenda sem stunda nám undir handleiðslu framúrskarandi listamanna og annarra sérfræðinga. Listaháskóli Íslands er leiðandi í sköpun og miðlun þekkingar í listum, eflir fagmennsku og er í fararbroddi fyrir þróun almennrar menntastefnu í listum. Starfsstöðvar skólans eru við Þverholt, Skipholt, Borgartún, Laugarnesveg og Austurstræti í Reykjavík.

Sótt er um starfið á ráðningarvefnum Alfred.is.

Umsóknarfrestur er 25. september 2022.

Upplýsingar um starfið veitir Hulda Stefánsdóttir, sviðsforseti akademískrar þróunar, huldastefansdottir [at] lhi.is

Siðareglur Listaháskóla Íslands.