Laugardaginn 26. maí 2018 bjóða meistararanemar í listkennsludeild Listaháskóla Íslands til útskriftarviðburðar í Menningarhúsunum í Kópavogi.
Þar kynna útskriftarnemendurnir lokaverkefni sín með margskonar hætti og gefst gestum meðal annars kostur á að taka þátt í fjölbreyttum smiðjum sem eru lýsandi fyrir lokaverkefni nemenda.
Dagskrá stendur yfir frá kl. 13- 16 og öll eru velkomin.
DAGSKRÁ