
Haustönn 2023
ÁGÚST
Tálgað og tengt við náttúruna
Listmiðuð umhverfismenntun
Kennari af líf og sál
SEPTEMBER
Efnisheimur
Heimspekileg samræða í kennslu
OKTÓBER
NÓVEMBER
Verkefnastjórnun
Sumarönn 2023
MAÍ
ÁGÚST
Vorönn 2023
JANÚAR
Lærdómssamfélagið og tónlistarskólinn
Leikstjórn með ungu fólki
Aðferðir lista í skólastarfi
Fríspuni í tónlistarkennslu
Listir og fjölmenning
Listir og göngur
Greinandi hlustun
Project Management in the Arts
Failure in Performance
Leikstjórn með ungu fólki
Aðferðir lista í skólastarfi
Fríspuni í tónlistarkennslu
Listir og fjölmenning
Listir og göngur
Greinandi hlustun
Project Management in the Arts
Failure in Performance
FEBRÚAR
Sjónræn samræða
Leikur er list
Umsjónarkennarinn
Skapandi starf í tónlistarnámi I
Gagnvirk tónlist I
Music and Dementia / Tónlist og heilabilun
Leikur er list
Umsjónarkennarinn
Skapandi starf í tónlistarnámi I
Gagnvirk tónlist I
Music and Dementia / Tónlist og heilabilun
MARS
Listir og fjölmenning - framkvæmd
Útsetningar í skólastarfi
APRÍL
MAÍ
Í Opna Listaháskólanum getur fólk sótt námskeið sem kennd eru í öllum deildum Listaháskóla Íslands.
Listi yfir námskeiðsframboð sem og tíma- og dagsetningar allra námskeiða eru birtar með fyrirvara um breytingar og einnig að lágmarksþátttaka náist í námskeiðin.
Sótt er um námskeið á umsóknargátt LHÍ: https://ugla.lhi.is/stoknamskeid/
Sótt er um námskeið á umsóknargátt LHÍ: https://ugla.lhi.is/stoknamskeid/
Umsókn
Námskeiðin eru á BA og MA stigi og er fagleg stjórnun þeirra í höndum deilda Listaháskóla Íslands. Þau er hægt að taka bæði með eða án eininga. Taki nemandi námskeið með einingum þarf nemandi að standast námsmatsviðmið og uppfylla mætingarskyldu viðkomandi námskeiðs til að einingar teljist þreyttar.
Námskeiðin eru á BA og MA stigi og er fagleg stjórnun þeirra í höndum deilda Listaháskóla Íslands. Þau er hægt að taka bæði með eða án eininga. Taki nemandi námskeið með einingum þarf nemandi að standast námsmatsviðmið og uppfylla mætingarskyldu viðkomandi námskeiðs til að einingar teljist þreyttar.
Kjósi nemendur að taka námskeið án eininga gefur kennari verkefnum nemenda ekki endurgjöf. Verðmunur ræðst þ.a.l. af auknu vinnuálagi kennara. Námskeið sem tekin eru án eininga geta þó skráðst, án eininga, á námsferil nemenda.
Mikilvægt er að umsækjendur skili vel útfylltu umsóknareyðublaði.
Leiðarljós Opna Listaháskólans
Opni Listaháskólinn er gátt Listaháskólans út í samfélagið þar sem þekking og reynsla fær að streyma óhindrað í báðar áttir. Markmið hans er meðal annars að glæða áhuga almennings á listum og veita sem breiðustum hópi fólks aðgang að þeirri sérþekkingu og aðstöðu sem Listaháskóli Íslands býr yfir.
Með tilkomu Opna Listaháskólans stóraukast einnig möguleikar starfandi listafólks og hönnuða til símenntunar, starfsþróunar og tengslamyndunar. Áhersla er lögð á að greina og bregðast við þörfum vettvangsins og eiga í virku samstarfi við fagfélög, fyrirtæki og stofnanir þar um.
Opni Listaháskólinn fagnar fjölbreytileika mannlífsins og því er kapp lagt á að tryggja aðgengi þeirra hópa sem hingað til hafa ekki átt greiðan aðgang að list- og menningarfræðslu, hvort sem er vegna búsetu, fötlunar, uppruna eða annarra þátta.
Viðburðir á vegum Opna Listaháskólans eru allt frá snörpum kvöldnámskeiðum fyrir almenning til stórra sérhæfðra námskeiða á meistarastigi.
