Listkennsludeild Listaháskóla Íslands hefur nú lokið við yfirferð umsókna í kennaranám fyrir vorið 2020 og sent út boð til þeirra sem fá inngöngu skólaárið 2020-2021.
Fjöldi umsækjenda síðan í fyrra heldur sér og bætir enn fremur við um 12% í umsóknum á milli ára.
Ákaflega ánægjulegt er að í ár sækja fjölmargir karlmenn um kennaranám í listkennsludeild, en fjöldi umsókna frá karlkyns umsækjendum nífaldaðist á milli ára.
Mikil samstaða hefur verið milli þeirra háskóla sem bjóða upp á kennaranám, það er LHÍ, HR, HÍ og HA, sem og Mennta- og menningamálaráðuneytisins um aðgerðir til að stuðla að nýliðun í kennaranámi. Þessháttar samstaða milli háskóla og ráðuneytis skiptir gríðarmiklu máli og það sést berlega í verki hver niðurstaðan á sameinuðu átaki er.
Nú, eins og á síðustu árum, eru umsóknir vandaðar og fjölbreyttar og því ljóst að enn á ný kemur hæfileikaríkur hópur nýnema til með að hefja nám í listkennsludeild í haust.
Til hamingju nýnemar og verið velkomin í listkennsludeild LHÍ.