Listkennsludeild
Deild
Listkennsludeild · Útskriftarverkefni
Námsleið
2026
Ár
Um verkefnið

Elína Helga Hallgrímsdóttir útskrifast með meistaragráðu og kennsluréttindi frá listkennsludeild vorið 2026

Því þú ert hér

Hvaða áhrif hefur nærvera forráðamanns á ungt barn í nýjum aðstæðum? nánar tiltekið leiklistarnámskeiði.

Ritgerðin mín skoðar áhrif nærveru forráðamanns á upplifun og þátttöku ungra barna í nýjum aðstæðum. Til þess að rannsaka það útbjó ég lítið leiklistarnámskeið og bauð nokkrum börnum í fyrsta bekk og forráðamanni þeirra að vera með. Rannsóknin er eigindleg starfendarannsókn þar sem gagna var aflað á ýmsan hátt.

Niðurstöður benda til þess að nærvera forráðamanns geti bæði aukið öryggi og haft áhrif á sjálfstæða þátttöku barna, eða haft öfug áhrif en útkoman liggur í eðli samskipta þeirra á milli. Börn sem fengu hvatningu og rými til sjálfstæðrar þátttöku tóku virkari þátt, en of mikil íhlutun eða skortur á stuðningi dró úr þátttöku.

Leiðbeinandi: Ása Helga Proppé Ragnarsdóttir

30 ECTS Kennslufræði MA

2026