Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Vigdís Skagfjörð Sigurlínudóttir

Vigdís Skagfjörð Sigurlínudóttir útskrifast með meistaragráðu af námsleiðinni listir og velferð frá listkennsludeild vorið 2026

 

Listin að syrgja

Skapandi ferli í sorg, frá tjáningu til merkingar

 

Í þessari ritgerð er fjallað um hlutverk skapandi tjáningar og jafningjastuðnings í
sorgarferli, með sérstakri áherslu á listasmiðjur sem mögulegt stuðningsúrræði fyrir
syrgjendur. Í upphafi er sett fram fræðilegt samhengi þar sem fjallað er um sorg sem
heildræna reynslu, merkingarsköpun og hlutverk skapandi tjáningar í úrvinnslu erfiðrar lífsreynslu.

Rannsóknin byggir á eigindlegri nálgun og fól í sér opið hús í formi listasmiðju sem haldið var einu sinni í viku í sex vikur fyrir einstaklinga í sorg. Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvernig slíkt rými, sem sameinar skapandi tjáningu og jafningjastuðning, getur haft áhrif á líðan, sjálfsskilning og þátttöku syrgjenda í daglegu lífi. Gagna var aflað með spurningalistum, rýnihópsviðtali, einstaklingsviðtölum og rannsóknardagbók.

Helstu niðurstöður benda til þess að listasmiðjan hafi skapað öruggt og styðjandi rými þar sem þátttakendur gátu nálgast sorg sína á eigin forsendum. Skapandi tjáning reyndist mikilvægur farvegur fyrir úrvinnslu tilfinninga, sérstaklega þegar þátttakendur áttu erfitt með að tjá upplifun sína með orðum. Jafningjastuðningur gegndi einnig lykilhlutverki, meðal annars með því að draga úr tilfinningu einangrunar og stuðla að auknum skilningi þátttakenda á eigin reynslu og reynslu annarra.

Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að listasmiðjur sem þessar geti verið mikilvæg viðbót við hefðbundin úrræði í sorgarstuðningi og stuðlað að bættri líðan, sjálfsskilningi og félagslegri þátttöku syrgjenda.

 

Leiðbeinendur: Hrefna Lind Lárusdóttir og Vigfús Bjarni Albertsson
30 ECTS Listir og velferð
2026