Hanna Hulda er leikstjóri og handritshöfundur úr Laugardalnum. Hún er með bakgrunn í samtímadansi og hefur mjög gaman af því að vinna með dans í kvikmyndagerðinni. Hún hefur unnið að ýmsum stuttmyndum, tónlistarmyndböndum og öðrum listrænum myndum. Stuttmyndin hennar frá fyrsta ári, „Í takt“, vann tvenn verðlaun á kvikmyndahátíðinni Stockfish í apríl 2025.
BA Kvikmyndagerð
Stuttmynd: Hringdans
Þegar bestu vinkonur, Hekla og Guðrún, hittast eftir langan aðskilnað, tekur sig fljótt upp gamalt og óheilbrigt samskiptamunstur. Smátt og smátt magnast upp spenna og gremja þar til orð og tilfinningar sem liggja í loftinu neyða vinkonurnar loks til að takast á við það sem er ósagt.
Leikstjórn: Hanna Hulda Hafþórsdóttir Handrit: Álfheiður Richter Sigurðardóttir, Hanna Hulda Hafþórsdóttir Framleiðandi: Álfheiður Richter Sigurðardóttir Stjórn kvikmyndatöku: Úlfur Arnalds Klipping: Albert Eriksen Hljóðhönnun: Gert Svetlanov Leikmyndahönnun: Arthur Van Berckelaer Búningahönnun: Hekla Örk Ingólfsdóttir Lýsing: Markus Rooveer Leikarar: Kristín Þorsteinsdóttir, Anja Sæberg, Mímir Bjarki Pálmason, Tristan Ernir