Kvikmyndalistadeild
Deild
FILMA · Kvikmyndalistadeild · Útskriftarverkefni
Námsleið
2026
Ár
Um verkefnið

Telma er lærð leikkona og hefur unnið í kvikmyndabransanum undanfarinn áratug bæði fyrir framan og aftan myndavélina. Í náminu er hún með fókus á handrit og leikstjórn. Stíll hennar grundvallast á rannsókn á samfélaginu, oftast út frá sjónarhorni karakters sem keyrir söguna. Sögur hennar hafa oftast femíníska undirtóna.

BA Kvikmyndagerð

Stuttmynd: Femínista hóra

Eftir viðtal í fjölmiðlum reynir Vala að slaka á heima hjá sér. En þegar líður á kvöldið fara hótanirnar sem hún er vön að hunsa að færast óþægilega nær — og öryggið sem hún treystir á byrjar hægt og rólega að bresta.

Leikstjórn: Telma Huld Jóhannesdóttir Handrit: Telma Huld Jóhannesdóttir Framleiðandi: Salvör Bergmann Stjórn kvikmyndatöku: Svavar Burgundy Klipping: Egill Spano Hljóðhönnun: Kristbjörg Lára Gunnarsdóttir Tónlist: Árni Húmi Aðalsteinsson Leikarar: Kristín Lea Sigríðardóttir, Guðjón Ragnarsson, Júlíanna Sara Gunnarsdóttir