Sundurlimað efni // Material Dismemberment
Glerjaður steinleir, okkurleir, smíðajárn, timbur
Afmynduð vera, með líffæri sín afhjúpuð, heldur á rýtingi, sem er smíðaður úr járni úr íslenskri mýri og unninn með fornum málmvinnsluaðferðum. Veran er mótuð úr leir sem er glerjaður með blöndu úr íslenskum steinefnum, mýrarmálmi og skeljamulningi. Innyflin eru hjúpuð leir sem safnað hefur verið úr heitum hverum.
Efniskennd og táknfræði verksins ber með sér hugmyndir um ofbeldi og dauða. Viðvörun um þá vonlausu glímu við frumstæð og ill öfl, sem leynast undir yfirborði þæginda nútímans. Þessi hjúpur værðar og þæginda hylur skynjun mannsins á efnisheiminum, á meðan kjarni hans leysist hljóðlega upp.
—-
Glazed stoneware, ochre clay, wrought iron, wood planks
A mutilated figure with its earthy organs exposed, holds a dagger made of wrought iron melted from Icelandic bog iron using ancient metallurgy methods. The figure, made from stoneware clay and a glaze, mixed with Icelandic bog iron, crushed seashells and native Icelandic clay. Its organs are made of ochre clay collected from geothermal pools.
Violence and death animate this material presence. Its manifestation bares a spiritual warning of the helpless struggle against prime evils that lie beneath comfortable ignorance. This veil of comfort clouds the perception of the material world and leaves its essence in a forlorn state of quiet dissolution.
Photo credits: Sisters Lumière / @sisters_lumiere