Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.
Skoða vefinn á ÍslenskuMaríanna Eva Dúfa Sævarsdóttir útskrifast með meistaragráðu og kennsluréttindi frá listkennsludeild vorið 2026
Þessi ritgerð færi rök fyrir því að hæghorf í listasafni, sem hluti af inngildandi safnafræðslu, getur eflt vellíðan, athygli og þátttöku ungs fólks í starfsendurhæfingu. Rannsóknin byggir á átta vikna hæghorfsnámskeiði á Kjarvalsstöðum í samstarfi við Víðsjá, þar sem unnið var með listaverk í rólegum og fyrirsjáanlegum ramma sem tók mið af dagsformi og skynjun þátttakenda.
Rannsóknin er eigindleg starfstengd rannsókn og gögn voru fengin úr vettvangsnótum og
hljóðupptökum af samtölum í tímum, auk þess sem þátttakendum bauðst í lok námskeiðs að svara nafnlausri rafrænni könnun, aðgengilegri með QR-skönnun. Gögnin voru greind með þemagreiningu samkvæmt Braun og Clarke.
Niðurstöður sýna að hæghorf getur stutt við dýpri athygli og aukið myndlæsi, þar sem þátttakendur fara frá heildarsýn yfir í smáatriði, taka eftir blæbrigðum og finna orð yfir skynjun og merkingu. Þátttakendur lýstu einnig aukinni ró og að safnrýmið gæti veitt öryggi og frelsi til að vera þau sjálf, þó að stundum kæmu fram ónot þegar innra álag eða skynáreiti var mikið. Í ritgerðinni er dregið fram hvaða þættir í ramma námskeiðsins, samskiptum og fræðslu styðja eða hindra þátttöku og settar fram hagnýtar ábendingar til að þróa inngildandi safnafræðslu fyrir ungmenni í starfsendurhæfingu.
Leiðbeinendur: Gunndís Ýr Finnbogadóttir og Kristín Valsdóttir
30 ECTS Listir og velferð
2026
Maríanna Eva Dúfa Sævarsdóttir er myndlistarkona, safnakennari og útskriftarnemi úr meistaranámi í listum og velferð við Listaháskóla Íslands. Hún hefur starfað um árabil við Listasafn Reykjavíkur, bæði í móttöku og safnfræðslu, og hefur sérstakan áhuga á því hvernig listasöfn geta orðið aðgengilegri, inngildandi og nærandi rými fyrir fjölbreyttan hóp gesta. Í verkum sínum og rannsóknum vinnur hún með tengsl lista, vellíðanar, skynjunar og þátttöku, með áherslu á hæghorf, safnfræðslu og félagslega virkni.