Tónlistardeild
Deild
Útskriftarhátíð 2025 · Útskriftarverkefni
Námsleið
2025
Ár
Um verkefnið

07.05.25

Salurinn Kópavogi

Flytjendur

Högni Gunnar Högnason, selló

Eva Þyri Hilmarsdóttir, píanó

Tómas Vigur Magnússon, fiðla

Styrmir Þeyr Traustason, píanó

B.Mus. Hljóðfæraleikur

Högni Gunnar er fæddur þann 19.desember, árið 2002 og hóf Suzuki-sellónám fimm ára að aldri hjá Örnólfi Kristjánssyni í Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar. Högni Gunnar lærði hjá Örnólfi í heil tíu ár en að þeim loknum fór hann til Gunnars Kvaran. Hann naut handleiðslu Gunnars Kvaran næstu fjögur árin eða þar til hann útskrifaðist með framhaldspróf frá Tónskóla Sigursveins árið 2022. Haustið 2022 hóf hann að stunda nám í klassískum hljóðfæraleik við Listaháskóla Íslands undir leiðsögn Sigurðar Bjarka Gunnarssonar og Sigurgeirs Agnarssonar.

Högni Gunnar hefur tekið þátt í ýmsum verkefnum í gegnum tíðina, t.a.m. hefur hann sótt námskeið hérlendis og erlendis en ásamt því hefur hann sótt fjölda masterclassa. Hann hefur einnig tekið þátt í ýmsum hljómsveitarverkefnum en er þar helst að nefna Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Ungfóníuna.