Tónlistardeild
Deild
Tónsmíðar BA · Útskriftarverkefni
Námsleið
2026
Ár
Um verkefnið

30.03.26

Smekkleysa

Flytjendur

MEINSEMD

Viktor Árni Veigarsson (Ableton live, bassa, söngur)

KOLLAPS

Wade Black (Söngur)

Viktor Árni Veigarsson (Bassa)

Guðmundur Hermann Lárusson (Trommur)

FORSMÁN

Viktor Árni Veigarsson (Bassa, söngur)

Oddur Blöndal (Gítar, söngur)

Kristján Einar Guðmundsson (Trommur)

Haukur Þór Valdimarsson (Gítar)

BA Nýmiðlatónsmíðar

Viktor Árni Veigarsson er tónskáld sem er að útskrifast úr nýmiðlatónsmíðum. Hann hefur verið mjög virkur í öfgarokksenunni innanlands í þó nokkur ár. Á þessum tónleikum mun hann flytja raftónlist sem hann hefur verið að semja, ásamt því að spila industrial- og svartmálmstónlist með hljómsveitum sem hann hefur verið að starfa með.

Meinsemd er hugarfóstur Viktors Árna og er frumraun hans í lagasmíðum. Meinsemd var stofnuð 2023 og gaf út fjögurra laga demó 2024. Hljómsveitin hefur aðallega verið að spila dauðarokk hingað til en fyrir þessa tónleika mun Viktor frumflytja raftónlist sína sérstaklega fyrir þessa tónleika undir sama nafni.

Kollaps er post-industrial hljómsveit sem hefur skapað sér orðspor fyrir tónleika sem geta verið átakanlegir. Þeir notast við málmhluti og hljóðfæri unnin úr krufingaverkfærum sem gegna lykilhlutverk í flutningi þeirra. Kollaps starfar frekar sem apparat ókyrrðar og rofs heldur en sem hefðbundið hljómsveit, þar sem tónlistin er byggð á hljóðum úr málmflökum, steinsteypu, og rafbúnaði.

Forsmán var stofnuð árið 2019 af Viktori Árni og Hauki Þór Valdimarssyni. Þeir hafa verið virkir í svartmálmssenunni síðan 2020 og eru að vinna í nýrri plötu. Á þessum tónleikum mun Viktor flytja sín eigin lög af þessari væntanlegu skífu.

Um verkin

Meinsemd – medley

Kollaps – Crystallisation as a Means of disappearance, Iron Sight Halo, Fleshflower

Forsmán – Andvana, Valdníðsla, Barmafylltar fjöldagrafir