Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Fyrsta útskrift úr meistaranámi í listum og velferð

  • 13.maí 2026

Vorið 2026 útskrifar listkennsludeild Listaháskóla Íslands fyrsta hóp meistaranema af námsleiðinni listir og velferð

 

Meistaranám í listum og velferð er fyrir þau sem hafa áhuga á að þróa leiðir til að nýta listir í þágu félags- og heilsueflingar.

Námið byggir á fjölbreyttum námskeiðum, s.s. listmeðferðarfræði, listum í samfélaginu, rannsóknaraðferðum og vinnustofum, ásamt vinnu á vettvangi. Náminu er ætlað að styðja við einstaklingsbundinn áhuga nemenda, sem þróar sína eigin leið í gegnum námið og byggir lokaverkefni sitt á persónulegum faglegum áhuga, reynslu og framtíðarsýn. Í gegnum aðferðir lista og með samvinnu faggreina og ólíkra hópa samfélagsins er markmiðið að styðja við borgaralega þátttöku og félagslega ábyrgð nemenda og stofnana í átt að inngildingu.

Markmiðið með meistaranáminu er að auka aðgengi og þátttöku ólíkra hópa í listtengdum verkefnum og viðburðum. Áhersla er á að þróa nýjar leiðir í þverfaglegri samvinnu stofnana, félagasamtaka og listamanna í störfum sem fara fram við síbreytilegar aðstæður með fjölbreyttum hópi einstaklinga.

Nemendur sem sækja námið hafa lokið bakkalárgráðu í listum eða í öðrum greinum; svo sem heilbrigðisvísindum eða félagsvísindum og hafa talsverðra menntun eða reynslu í einhverri listgrein.

Fyrsti útskriftarhópur meistaranema í listum og velferð kynna lokaverkefni sín á útskriftarviðburði listkennsludeildar LHÍ miðvikudaginn 20. maí í LHÍ Stakkahlíð, öll velkomin.

 

 

Miðvikudagur 20. maí – Meistaranemar í listum og velferð – Dagskrá

10.00-10.25 Hús opnar
10.25.-10.30 Deildarforseti/fagstjóri setur viðburð
10.30.-11.00 Maríanna Eva Dúfa Sævarsdóttir „Staldra við og lykta af blómunum“ Hæghorf með ungmennum í starfsendurhæfingu á Kjarvalsstöðum
11.00.-11.30 Vigdís Skagfjörð Sigurlínudóttir Listin að syrgja: Skapandi ferli í sorg, frá tjáningu til merkingar
11.30-12.00 Alexía Björg Jóhannesdóttir Fíflalæti og vellíðan: Áhrif alvörulausra leikja á fullorðið fólk
12.00-13.00 Hádegishlé
13.00-13.30 Ásdís Birna Gylfadóttir Að sá fræjum sem spíra: Hlutverk og möguleikar lista í meðferðarstarfi með unglingum
13.30-14.00 Silja Þórðardóttir Skapandi heilsa: Listaseðlar sem leið til heilsueflingar á Íslandi
14.00-14.30 Samtal um gildi lista og velferðar