Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Alexía Björg Jóhannesdóttir

Alexía Björg Jóhannesdóttir útskrifast með meistaragráðu af námsleiðinni listir og velferð frá listkennsludeild vorið 2026

 

Fíflalæti og vellíðan

Áhrif alvörulausra leikja á fullorðið fólk

 

Þessi ritgerð, sem ber heitið Fíflalæti og vellíðan – áhrif alvörulausra leikja á fullorðið fólk, fjallar um það hvort og hvers vegna fullorðið fólk ætti að leika sér meira og vera í nánari tengslum við fíflalætin í sér. Framkvæmd var starfstengd rannsókn þar sem haldin voru þrjú leiklistarleikjanámskeið fyrir ólíka hópa af fullorðnu fólki: kvenfanga í fangelsinu á Hólmsheiði, sjúklinga af geðdeildum Landspítalans á Kleppi og fyrir innflytjendur í Mími símenntun. Spurningalistar voru lagðir fyrir þátttakendur á tveimur námskeiðanna, fyrir og eftir námskeið til að meta líðan.

 

 

Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að alvörulaus, gáskafullur—en þó skipulagður— leikur, sem hér er einfaldlega kölluð fíflalæti, geti haft jákvæð áhrif á líðan fólks og aukið gleði, bætt samskipti og styrkt sjálfsmynd. Þátttakendur sýndu meiri vellíðan eftir þátttöku á námskeiðunum. Einnig kom í ljós að leikur getur skapað öruggt rými fyrir tjáningu og tengslamyndun.

Rannsóknin styður þá niðurstöðu að leikur sé ekki einungis bundinn við bernsku heldur sé hann mikilvægur þáttur í andlegri heilsu og vellíðan fullorðinna. Niðurstöðurnar benda til þess að aukið rými fyrir leik og fíflalæti í samfélaginu geti haft jákvæð áhrif á lífsgæði fólks.

 

Leiðbeinendur Kristín Valsdóttir og Agnar Jón Egilsson
30 ECTS Listir og velferð
2026