
Egill hefur varið mestum hluta ævi sinnar erlendis og upplifað ólíka menningarheima. Hann hefur áhuga á kvikmyndalistinni vegna þess að hann vill skapa og segja sögur á sjónrænan hátt. Hið dulræna sköpunarferli kvikmyndalistarinnar er fjölhæfasta verkfærið til að endurspegla nútímann og beittasta aðferðin til þess að rannsaka hið mannlega ástand.

BA Kvikmyndagerð
Stuttmynd: Von syngur sinn orðlausa lagstúf
Eftir að uppáhaldsveitingastaðurinn þeirra lokar leggja tryggur sonur og öldruð móðir hans af stað út í óvænta nótt, þar sem þau takast á við minningar og missi á meðan þau enduruppgötva gleðina saman.
Leikstjórn: Egill Sigurðsson Handrit: Egill Sigurðsson, Claudia Fernandez Morenas Framleiðandi: Claudia Fernandez Morenas Stjórn kvikmyndatöku: Stefán Arnar Alexandersson Klipping: Albert Eriksen Hljóðhönnun: Boris Laible Tónlist: Arvid Rask Leikarar: Pétur Eggerz, Guðrún S. Gísladóttir