Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Ásdís Birna Gylfadóttir

Ásdís Birna Gylfadóttir útskrifast með meistaragráðu af námsleiðinni listir og velferð frá listkennsludeild vorið 2026

 

Að sá fræjum sem spíra

Hlutverk og möguleikar lista í meðferðarstarfi með unglingum

 

Ritgerðin fjallar um hlutverk lista í meðferðarstarfi með ungmennum sem glíma við vímuefnavanda, alvarlegan hegðunarvanda og afbrotahegðun og hvort list geti nýst sem uppbyggjandi tól í þeim aðstæðum. Þau fræði sem stuðst er við fjalla annars vegar um unglingsárin og mótun sjálfsmyndar. Í því samhengi eru hugtök á borð við stöðufræði og sjálfsákvörðunarkenninguna kynnt ásamt því að fjallað er um áföll og áhættuhegðun á meðal ungmenna. Hins vegar er stuðst við rannsóknir á áhrifum lista á velferð og fjallað um listmeðferð og opnar vinnustofur. Rannsókn ritgerðarinnar byggist á eigindlegri viðtalsrannsókn en gögnum var safnað með hálf-opnum viðtölum við fjóra forstöðumenn meðferðarheimila á vegum Barna- og fjölskyldustofu.

 

Helstu niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að þrátt fyrir ákveðnar áskoranir, sé skýr vilji og grunnur til staðar fyrir nýtingu lista í meðferðarstarfi fyrir ungmenni. Áhugamiðuð nálgun og sveigjanleiki í starfi virðist stuðla að aukinni þátttöku og virkni hjá skjólstæðingum meðferðarheimilanna. Niðurstöðurnar benda til þess að list hafi raunveruleg og sýnileg áhrif á líðan og hegðun þeirra.

Auk þess virðist sem listsköpun geti skapað rými fyrir úrvinnslu tilfinninga, aukið sjálfstraust og stuðlað að núvitund. Í ljósi niðurstaðanna má draga þá ályktun að list geti nýst sem uppbyggjandi tól í meðferðarstarfi fyrir ungmenni, en að það sé háð skipulagi, aðstæðum og faglegum ramma starfsins. Til þess að efla nýtingu lista í starfinu enn frekar virðist vera þörf á markvissri stefnumótun, aukinni fagþekkingu og betra aðgengi að fjölbreyttum listformum.

Leiðbeinendur: Kristín Valsdóttir og Martin Bruss Smedlund
30 ECTS Listir og velferð
2026

Ásdís Birna Gylfadóttir er myndlistarkona að mennt. Hún hefur starfað með börnum á öllum aldri frá því að hún var unglingur og lítur svo á að velferð samfélagsins endurspeglist í því hvernig við mætum börnum og ungmennum. Hún hefur sérstakan áhuga á mannlegri hegðun, samskiptum og tengslum okkar við náttúruna sem endurspeglast í listsköpun hennar. Í listrænum verkefnum sínum leggur hún áherslu á að nýta list sem tól til tengingar, sjálfstjáningar og aukinnar samfélagsvitundar.