Tónlistardeild
Deild
MA Tónsmíðar · Útskriftarhátíð 2025 · Útskriftarverkefni
Námsleið
2025
Ár
Um verkefnið

08.05.25

Salurinn Kópavogi

Flytjendur

Stirnir Kjartansson, gítarleikari og stjórnandi

Bjarni Daníel Þorvaldsson, gítarleikari

Hugi Kjartansson, gítarleikari

Masaya Ozaki, gítarleikari

Ronja Jóhannsdóttir, gítarleikari

Vigfús Þór Eiríksson, gítarleikari

Þóra Birgit Bernódusdóttir, bassaleikari

Ægir Sindri Bjarnason, trommuleikari

Rósa Sif Welding Kristinsdóttir, symbalar

Ernir Ómarsson, symbalar

BA Nýmiðlatónsmíðar

Stirnir Kjartansson er gítarleikari, lagasmiður, tónskáld o.fl. Hann er yfirleitt kenndur við senuna í kringum listasamlagið post-dreifingu og hefur hann verið í ótal mörgum hljómsveitum í gegnum árin og spilað og unnið með fjölbreyttri flóru listafólks.

Seinustu árin hefur Stirnir rannsakað þau akústísku fyrirbæri sem kunna að birtast í háværum og ómstríðum tónlistarlegum aðstæðum í formi stórsveita sem samanstanda af mörgum uppmögnuðum rafmagnsgítörum.

Í tónlistarsköpun sinni leggur Stirnir mikla áherslu á samstillingu og jafnvægi hljóðs með hjálp ómstríðu, fjölbreytileika og huglægs eðlis skynfæra okkar.