Listkennsludeild
Deild
Listkennsludeild · Útskriftarverkefni
Námsleið
2026
Ár
Um verkefnið

Rósa Rún Aðalsteinsdóttir útskrifast með meistaragráðu og kennsluréttindi frá listkennsludeild veturinn 2026

Syndlaug og samtal:

heimildarmynd um vinnuferli danshöfundar í samstarfi við dansnemendur.

Í þessu verkefni kanna ég hvernig samskipti milli danshöfundar og dansnemenda geta haft áhrif á skapandi ferli. Rannsóknin byggir á skrásetningu tveggja anna vinnu við gerð dansverks.

Miðlunarhluti verkefnisins er heimildarmyndin Syndlaug og samtal sem fylgir ferðalagi mínu með hópi útskriftarnemanda í dansi þar sem við sköpuðum dansverkið Syndlaug. Myndin opnar á einlæga hlið æfingaferilsins og sýnir hvernig traust og náin samskipti móta sköpunarferlið.

Niðurstöður benda til þess að samskipti og tengsl séu grunnforsenda skapandi ferils. Verkefnið varpar ljósi á mikilvægi þess að skrásetja vinnuferli danshöfunda og sýnir hvernig sameiginlegt sköpunarrými, mótað af tengslum og samtali, getur orðið kjarninn í lifandi dansverki.

Hlekkur á heimildarmyndina Syndlaug og samtal hér.

Leiðbeinandi: Hrefna Lind Lárusdóttir

30 ECTS Listkennslufræði MA

2026