30.11.26
Salurinn Tónlistarhús
Flytjendur
Matthías Kormáksson, harmonikuleikari
Igor Kabala, harmonikuleikari
B. Mus. Hljóðfæraleikur
Matthías Kormáksson fæddist á Sauðárkróki árið 1981 og ólst upp á höfuðborgarsvæðinu frá fjögurra ára aldri. Hann eignaðist sína fyrstu harmoniku ellefu ára gamall og lærði hjá Viðari Hörgdal, Karli Jónatanssyni, Tatu Kantomaa og síðar Yuri Fjodorov. Á unglingsárunum tók hann þátt í harmonikukeppnum hér heima og erlendis og árið 2003 kom út geisladiskur þar sem hann leikur klassíska tónlist á harmoniku með hefðbundnum (standard) bassa.
Leiðin lá síðan í stærðfræði. Matthías lauk BS-prófi í stærðfræði frá Háskóla Íslands árið 2004 og doktorsprófi í tölfræði frá Cornell-háskóla í Bandaríkjunum árið 2010. Á árunum 2012–2016 bjó hann í Rio de Janeiro þar sem hann nam orgelleik hjá Domitilu Ballesteros og sótti jafnframt tíma við Universidade Federal do Rio de Janeiro.
Eftir heimkomu til Íslands árið 2021 sneri Matthías sér aftur að harmonikunni, nú harmoniku með melódíubassa, og hóf nám hjá German Khlopin. Árið 2023 skráði hann sig í B.Mus-nám við Listaháskóla Íslands þar sem hann lærði undir handleiðslu Germans og eru þessir tónleikar lokaáfangi þess náms.
Samhliða náminu starfar Matthías sem tölfræðingur hjá lyfjafyrirtækinu Novartis. Tónlistin og stærðfræðin hafa fylgt Matthíasi alla tíð og eiga þær báðar fastan stað í lífi hans.
