Listkennsludeild
Deild
Listkennsludeild · Útskriftarverkefni
Námsleið
2026
Ár
Um verkefnið

Momoko Sóley Hayashi útskrifast með meistaragráðu og kennsluréttindi frá listkennsludeild vorið 2026

Samþætting vestur-afrískrar tónlistar í íslenskum grunnskólum

Við íslenskir grunnskólakennarar stöndum nú frammi fyrir miklum og hröðum breytingum, svo sem aukinni fjölmenningu í skólasamfélaginu. Þessi þróum felur í sér bæði áskoranir og tækifæri fyrir kennara til að skapa nýtt skólaumhverfi þar sem allir nemendur fá tækifæri til að taka þátt í námi á sínum eigin forsendum og hraða.

Tónmennt er ein af námsgreinum sem getur sérstaklega stuðlað að jöfnum tækifærum fyrir börn þar sem þátttaka í tónlist þarfnast ekki endilega tækni né tungumálakunnáttu. Í tónmenntakennslu er áhersla á tjáningu, samspil og virka hlustun sem getur stuðlað að myndun tengsla og vináttu meðal nemenda.

Námsefnið, sem kynnt verður í ritgerðinni, hefur verið mótað með hliðsjón af eigin tónlistarreynslu frá Gíneu í Vestur-Afríku, þar sem tónlist og dans gegna mikilvægu hlutverki í daglegum samskiptum og menningarlegri tjáningu. Í ritgerðinni vil ég kynna námsefnið „Afró spuni” sem fléttir saman vestur-afrískra tónlist og hægt er að nýta í kennslustofum í íslenskum grunnskólum

Leiðbeinandi: Kristín Valsdóttir

10 ECTS Listkennslufræði M.Art.Ed.

2026