Tónlistardeild
Deild
Útskriftarhátíð 2025 · Útskriftarverkefni
Námsleið
2025
Ár
Um verkefnið

06.05.25

Salurinn Kópavogi

Flytjendur

Helga Guðný Hallsdóttir, selló

Eva Þyri Hilmarsdóttir, píanó

B.Mus.Ed. Klassísk söng- og hljóðfærakennsla

Helga Guðný byrjaði 8 ára að læra á selló í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og var þar lengst nemandi hjá Bryndísi Björgvinsdóttur. Árið 2022 hóf hún nám við Listaháskóla Íslands undir handleiðslu Sigurðar Bjarka Gunnarssonar.

Meðfram sellónáminu hefur Helga sungið í þónokkrum kórum, m.a. Hamrahlíðarkórnum og kammerkórnum Huldi, og hefur tekið þátt í fjölmörgum kórverkefnum hérlendis og erlendis. Helga hefur einnig komið fram sem sellóleikari bæði á vettvangi klassískar tónlistar og dægurtónlistar.

Seinastliðin þrjú ár hefur Helga verið sumarstarfsmaður í Drafnarhúsi, dagþjálfun fyrir fólk með heilabilun, þar sem hún hefur nýtt tónlistarkunnáttu sína mikið. Í starfinu kviknaði hugmyndin að lokaritgerð hennar, en hún skrifaði um notkun tónlistar í þjónustuúrræðum fyrir fólk með heilabilun og mikilvægi þess að hafa góðan bakgrunn í tónlist og handleiðslu.

Frá því í janúar hefur Helga starfað sem afleysingarkennari í Tónskóla Sigursveins.