Hönnunardeild
Deild
Fatahönnun · Útskriftarverkefni
Námsleið
2026
Ár
Um verkefnið

Í þessu verkefni skoða ég hvernig viðkvæmni og styrkur geta samræmst og horfi til dýrlingsins Jóhönnu af Örk sem innblástur. Umbreyting hennar frá hetju til helgrar konu felur í sér tvíhyggju þar sem varnarleysi og seigla eru samofin í einni og sömu sögu.

Arfleifð Jóhönnu birtist í táknum sem ná út fyrir frásögnina og yfir í efnislega mynd. Fuglinn varð leiðandi tákn fyrir kraft og veikleika. Fjaðrir af íslenskum öndum og rjúpum, eru handtíndar og raðað í formsterka silúettu. Þannig verður hið brothætta að burðarvirki. Flíkurnar eru í stöðugri umbreytingu, þar sem mýktin ber í sér afl og styrkur birtist í gegnum viðkvæmni.

In this project, I explore how fragility and strength coexist by looking to Saint Jeanne d’Arc. Her transformation from war hero to saint embodies a duality where vulnerability and resilience coexist within the same narrative.

Jeanne’s legacy unfolds through symbols that extend beyond narrative into material form. The bird emerged as a guiding motif, both delicate and forceful. Icelandic duck and ptarmigan feathers, salvaged, hand-plucked one by one, are assembled into evolving silhouettes. Through accumulation, the fragile becomes structural. The garments exist in a state of transformation, where softness holds power, and strength reveals itself through delicacy.

Runway myndir: Eygló Gísladóttir
Lookbook myndir: Berglaug Petra Garðarsdóttir
Runway Video: Bjarni Einarsson

01 / 06