Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Kristín Þóra Pétursdóttir

Kristín Þóra Pétursdóttir útskrifast með meistaragráðu og kennsluréttindi frá listkennsludeild vorið 2026

 

Klár á klarinett

Þarfagreining á námsefni fyrir byrjendur í klarinettleik og drög að nýrri kennslubók

 

Markmið lokaverkefnisins er að leggja fram drög að nýrri kennslubók fyrir byrjendur í klarinettnámi og ber hún titilinn Klár á klarinett. Skortur hefur verið á íslensku námsefni fyrir nemendur í klarinettleik, en bókinni er ætlað að fylla upp í það tóm sem lengi hefur verið til staðar þegar kemur að eiginlegum kennslubókum fyrir unga klarinettnemendur. Fjallað er um þann fræðilega grunn og umhverfi tónlistarkennslu sem bókin er skrifuð með tilliti til. Má þar einkum nefna einkakennsluformið í hljóðfæranámi, áherslu nútímaskólasamfélags á skapandi þætti, aðferðir leiðsagnarnáms (e. formative assessment) sem nýttar eru til að ýta undir sjálfsábyrgð nemenda og hlutverk kennslubóka í hljóðfærakennslu byrjenda.

 

 

Markmið kennslubókarinnar þríþætt. Í fyrsta lagi er það að útbúa eiginlegt kennsluefni á íslensku, sem tekur mið af íslensku námsumhverfi og tónlistarmenningu. Í öðru lagi er það að bókin sé sjálfbær og ekki þurfi að leita út fyrir hana til að uppfylla kröfur um fjölbreytta nálgun í tónlistarnámi. Í því felst að snert er á þeim skapandi þáttum sem Aðalnámskrá tónlistarskóla (2000) kveður á um, svo sem spuna, tónsmíðum og leik eftir eyra, og að auki séu öll lög hljómsett innan kennslubókarinnar. Í þriðja lagi er markmið bókarinnar að veita nemendum og kennurum tækifæri til þess að nýta aðferðir leiðsagnarnáms með markvissum hætti, og er það fyrst og fremst gert með verkefnum sem stuðla að reglulegum markmiðsetningum og sjálfsmati nemenda, sem og virkrar samræðu milli kennara og nemanda um framvindu námsins.

Þarfagreining var einnig gerð á námsefni fyrir byrjendur í klarinettnámi og samanstóð hún af greiningu á því námsefni sem þegar er til og spurningakönnun sem lögð var fyrir starfandi klarinettkennara. Niðurstöður sýndu að þónokkuð brýn þörf er fyrir nýja íslenska kennslubók í klarinettleik.

Leiðbeinandi: Elín Anna Ísaksdóttir
20 ECTS Söng- og hljóðfærakennsla M.Mus.Ed.
2026