Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Jóna Gréta Hilmarsdóttir

Jóna Gréta lauk BA-námi í kvikmyndafræði með kynjafræði sem aukagrein vorið 2021 og hefur síðan þá starfað sem kvikmyndagagnrýnandi hjá Morgunblaðinu. Í náminu við Listaháskóla Íslands lagði hún áherslu á leikstjórn og framleiðslu. Samhliða náminu hefur hún framleitt ýmis verkefni, þ. á m. stuttmyndir fyrir NYU, MetFilm School og Columbia University. Auk þess starfar hún hjá framleiðslufyrirtækinu Norður.

BA Kvikmyndagerð

Stuttmynd: Snjóþungi

Á hefðbundnum vinnudegi í fjárhúsinu lendir einræni bóndinn Þormar í snjóflóði. Þar sem hann liggur fastur undir snjónum óttast hann ekki aðeins um eigið líf heldur einnig um örlög eiginkonu sinnar, Hrafnhildar, og sonar þeirra, Arons.    

Leikstjórn: Jóna Gréta Hilmarsdóttir Handrit: Jóna Gréta Hilmarsdóttir Framleiðandi: Jóna Gréta Hilmarsdóttir, Konráð Kárason Þormar  Stjórn kvikmyndatöku: Konráð Kárason Þormar  Klipping: Tómas Sturluson  Hljóðhönnun: Ísidór Jökull Bjarnason  Tónlist: Jóhannes Damian Patreksson  Framleiðandi á setti: Rán Christer Leikarar: Þorvaldur Davíð Kristjánsson, Álfrún Örnólfsdóttir, Erpur Aron Tristansson