Í aldanna rás hefur íslenska sauðkindin fætt okkur og klætt. Í dag er sauðfjárbúskapur á undanhaldi og ull er vannýtt auðlind. Árið 2025 voru um 150.000 kg af ull spunnin í garn en um 480.000 kg voru flutt erlendis í þéttpressuðum ullarbölum. Verkið leitast við að efla verðmætasköpun úr ull innanlands með smáiðnaði sem fléttar saman handverki og iðnaði. Sófinn er gerður úr pressuðum ullarbölum þar sem einingarnar gefa jafnframt strúktúr og mýkt. Með því að nota ullina í þessu formi grípur verkið inn í iðnaðarferlið, nýtir framleiðslutækni sem þegar er til staðar og færir ullina út fyrir samhengi hefðbundinna textílaðferða. Titillinn vísar til efnislegrar festingar ullarinnar og til fjárhagslegrar framtíðarsýnar.
For centuries, Icelandic sheep have provided food and clothing for the nation. Today, sheep farming in Iceland is in rapid decline and wool is an underutilized resource. In 2025, approximately 150,000 kg of wool were spun into yarn while 480,000 kg were exported unprocessed. This project explores new material applications that retain value locally through small-scale production at the intersection of craft and industry. The sofa is constructed from compressed wool bales in their transport form, where the wool blocks function as both structure and cushioning. Using the wool bale in its compressed form, the project intervenes in the production chain and repostitions wool within existing industrial processes, proposing new applications beyond conventional textile production.
Myndir: Claudio Parada Nunes
Erla Lind Guðmundsdóttir
Fjár-festing / Counting Sheep






