Tónlistardeild
Deild
Útskriftarverkefni
Námsleið
2024
Ár
Um verkefnið

01.05.24 – kl.17:00

Gróska, fundarsalur

BA hljóðfæraleikur

Flytjendur

Eva Þyri Hilmarsdóttir, píanó

Austin Ng, fiðla

Óskar Atli Kristinsson, píanó

Steinunn María Þormar hóf sellónám í Tónmenntaskólanum í Reykjavík hjá Sigurði Bjarka Gunnarssyni. Eftir grunnpróf lá leiðin í Tónlistarskólann í Reykjavík þar sem hún hélt sellónáminu áfram hjá Sigurgeiri Agnarssyni. Stuttu síðar hóf hún að sækja söngtíma hjá Þórunni Guðmundsdóttur og síðan þá hefur Steinunn stundað söngnám samhliða sellónáminu. Árið 2020 lauk hún framhaldsprófi í báðum fögum og ári seinna lauk hún burtfararprófi fyrir bæði hljóðfæri. Síðustu þrjú ár hefur Steinunn stundað Bachelornám í Listaháskóla Íslands undir handleiðslu Hönnu Dóru Sturludóttur, Dísellu Lárusdóttur og Kristins Sigmundssonar í söngnum og Sigurgeirs Agnarssonar á selló.