Tónlistardeild
Deild
Útskriftarverkefni
Námsleið
2024
Ár
Um verkefnið

04.05.24 – kl.20:00

Langholtskirkja

BA hljóðfæratónsmíðar

Flytjendur

Sönghópurinn Hljómeyki

Arnaldur Ingi Jónsson, píanó

Pétur Nói Stefánsson, orgel

Margrét Björk Daðadóttir, mezzósópran

Össur Ingi Jónsson, óbó og englahorn

Anna Maria Tabaczyńska, flauta

Edda Óskarsdóttir, klarinett

Þrá

Þrá er samansafn tónverka sem snerta á ýmsu; þakklæti, kvíða, aðgerðarleysi, og þrá. Erfiðar spurningar finna svör í ómþýðum söng og lítil, óróleg augnablik ummyndast í gnæfandi klettabjörg. Fjölbreytileiki tónverkanna gefur bæði yfirvegaða og ólgandi persónulega sneiðmynd af ungu tónskáldi við lok náms og upphaf fátæktar.

Arnaldur Ingi Jónsson

Arnaldur Ingi Jónsson er ungt tónskáld og píanóleikari. Auk þess hefur hann leikið með hljómsveitinni Lucy in Blue um árabil og gefið út lög undir listamannsnafninu Dread Lightly.