Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Tumi Torfason

03.05.26
Salurinn Tónlistarhús


Flytjendur
Caput Ensemble

Tumi Torfason
M.Mus. Tónsmíðar

Tumi Torfason er íslenskur tónlistarmaður með fjölbreyttan bakgrunn sem flytjandi, útsetjari og tónskáld. Hann er trompetleikari úr rytmísku áttinni og nam jazzhljóðfæraleik hér heima og í Svíþjóð. Öll hans tónlistarsköpun, innan veggja skólans og utan, hefur lengi kjarnast í tónsmíðum fyrir hina ýmsu hópa sem hann leiðir, allt frá dúó uppí stórsveit. Hann hefur nýtt ótal tækifæri til að brjótast útúr hefðbundinni fagurfræði jazzins og innleitt hljóðfæri og áhrif úr ýmsum áttum en þá sérstaklega úr klassískri tónlistarsögu. Þegar hann flutti heim frá Stokkhólmi steig hann skrefið til fulls og hóf meistaranám í hljóðfæratónsmíðum við Listaháskólann samhliða fjölbreyttum verkefnum í íslensku tónlistarsenunni. 

Um verkið // About the piece:

Meistaranáminu lýkur hann hér með 20 mínútna sinfóníettu fyrir Caput Ensemble sem ber heitið „Klasi”. Hugmyndin að verkinu birtist honum í draumi en þar hámaði hann í sig heilan vínberjaklasa og velti því fyrir sér í beinu framhaldi hvernig hægt væri að skrifa þann gjörning fyrir orkestru. Þegar hann vaknaði tók hann þessari draumsýn sem skýrum fyrirmælum frá listagyðjunni, festi kaup á grænum vínberjaklasa, mældi hann í bak og fyrir, át jafnóðum og vann verkið út frá mælingunum með hinum ýmsu tónsmíðaaðferðum sem hann hefur tileinkað sér gegnum námið. Glöggir hlustendur munu heyra stjörnu-, eyja- og samhljóðaklösum bregða fyrir en umfram allt berjaklasanum og hverju berinu á eftir öðru, bæði sætum og súrum.