Steinunn Thalia J. Claessen
ÖRKIN
„Það er enginn starfandi arkitekt hér í Vestmannaeyjum.“ – Skipulagsfulltrúi Vestmannaeyja
Í Vestmannaeyjum má enn lesa ummerki gossins í landslaginu, samhliða löngun til að varðveita tengsl við fyrri tíma. Uppbygging beinist að því að endurvekja tengslin við staðinn eins og hann var en uppbygging ein og sér er ekki endurreisn.
Úr þessum veruleika sprettur ÖRKIN. Verkefnið leggur til sveigjanlega búsetu og vinnuaðstöðu fyrir arkitekta og hönnuði sem koma tímabundið að uppbyggingu í Eyjum. ÖRKIN myndar einnig vettvang fyrir listamenn til dvalar og sköpunar, sem eflir menningarlíf bæjarins og styður við framþróun. ÖRKIN leitar jafnvægis milli minninga fortíðar og krafna framtíðar.
—
“There is no practicing architect here in Vestmannaeyjar.” – Municipal Planner of Vestmannaeyjar
Vestmannaeyjar continues to rise from the imprints of the eruption, seeking to reclaim a sense of what once was. This reconstruction seeks to establish a connection with the past, to re-establish a relationship with the place as it used to be. Yet building alone is not restoration.
From this context, ÖRKIN emerges. It proposes flexible living and working spaces for architects and designers contributing to the islands’ ongoing development. ÖRKIN provides a residency for artists fostering a creative environment that strengthens the cultural fabric of Vestmannaeyjar. It is a vessel for transition, seeking a balance between the heritage of the past and the potential of what is to come.
Myndir: Claudio Parada Nunes