Hönnunardeild
Deild
Grafísk hönnun · Útskriftarverkefni
Námsleið
2026
Ár
Um verkefnið

Rafskinna var nýstárleg rafknúin „bók“ sem birtist árlega í verslunarglugga í miðbæ Reykjavíkur um miðja tuttugustu öldina, þar sem auglýsingar flettust sjálfkrafa fyrir augum almennings. Gunnar Bachmann var hvatamaður Rafskinnu, sem sýndi handteiknuð auglýsingaplaköt eftir Tryggva Magnússon og Jón Kristinsson, með auglýsingum fyrir fjölbreytt íslensk fyrirtæki. Verkið endurvekur þessa sjónrænu sögu með því að safna plakötunum saman í bók og varpa ljósi á Rafskinnu sem mikilvægan þátt í íslenskri auglýsingamenningu. Með því veitir bókin innsýn í handverk og sjónræna tjáningu auglýsinganna og varðveitir minningu frumkvöðulsins og listamannanna á nýjan hátt.

Rafskinna was an innovative mechanical “book” that appeared annually in a shop window in downtown Reykjavík in the mid-twentieth century, where advertisements flipped automatically before the eyes of the public. Initiated by Gunnar Bachmann, Rafskinna featured hand-drawn advertising posters by Tryggvi Magnússon and Jón Kristinsson, promoting a wide range of Icelandic companies. This work revisits that visual history by collecting the posters into a book and highlighting Rafskinna as an important part of Icelandic advertising culture. In doing so, the book offers insight into the craftsmanship and visual expression of the advertisements, while preserving the legacy of the initiator and the artists in a new way.

Myndir: Claudio Parada Nunes

Rannveig Þóra Karlsdóttir
Rafskinna

01 / 04