Breytingar eru óhjákvæmilegur, órjúfanlegur hluti lífsins og birtast stundum sem krísur. Þá finnur maður oft að það eina sem maður getur stjórnað í þessum heimi er maður sjálfur, en þá er erfitt að horfast í augu við að maður hafi í raun afar litla stjórn á sjálfum sér. Með verunni er hægt að skapa rými til að ná taki á eigin hugsunum og reyna að undirbúa sig fyrir komandi krísur með nokkurs konar hugleiðslu. Á hverjum degi má taka sér tíma til að horfa í logann og fylgjast með vaxi drjúpa niður veruna. Með reglulegri notkun myndast, hægt en örugglega, táknrænn verndarhjúpur um hana sem gerir manni kleift að sía út þær hugsanir sem maður hleypir að sér. Stjórnandinn leiðir þig í hinni eilífu leit að stjórn í stjórnlausum heimi.
Changes are inevitable. They are an integral part of life and often manifest as crises. During a crisis one tends to realize that the only thing you can control in this life is yourself, which makes the realization that you also have no control over yourself difficult. With this figure you get the space to try and take control of your own thoughts and to prepare for upcoming crises with a form of meditation. Every day you can give yourself time to look at the flame and watch the wax drip down the figure. With regular use, slowly but surely, a symbolic protective shell forms around it, making it easier to filter the thoughts we let affect us and to visualize our progress on this journey. The Master guides you in the eternal search for control in an uncontrollable world.
Myndir: Claudio Parada Nunes
Bríet Sigtryggsdóttir
Stjórnandi / Master


