Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Kristín Áskelsdóttir

Kristín Áskelsdóttir útskrifast með meistaragráðu og kennsluréttindi frá listkennsludeild veturinn 2026

 

Í hverju felst sköpun á sviði verkgreina?

Rannsókn á skapandi áherslum textílkennara og sýn nemenda á skapandi verkgreinanám

 

Ég heiti Kristín Áskelsdóttir og útskrifaðist með meistaragráðu og kennsluréttindi frá listkennsludeild LHÍ í janúar 2026. Áður hef ég lokið BA námi í fatahönnun og diplómagráðu í textíl, í dag starfa ég sem textílkennari í Rimaskóla og hef gert í eitt ár þar sem ég tel að allar rannsóknir og þekkingaröflun á bakvið lokaverkefnið mitt skili sér miklu í því hvernig kennari ég er.

Lokaverkefnið mitt við listkennsludeildina er kallað Í hverju felst sköpun á sviði verkgreina? : rannsókn á skapandi áherslum textílkennara og sýn nemenda á skapandi verkgreinanám. Það fjallar um sköpun í verkgreinum á grunnskólastigi og þá aðalega textílmennt því þar liggur sérþekking mín. Ég tók viðtöl við kennara og vann með nemendum að tilraunaverkefnum til þess að freista þess að læra meira um frumlegar hugmyndir nemenda, sjálfstæði og sköpun í textílmennt ásamt því að svara rannsóknarspurningunum. Þær voru: eru kennarar að vinna eftir eigin sannfæringu um að kennsla þeirra sé skapandi og er sköpun áhersla í þeirra kennslu? Hvernig nemendur í grunnskólum í dag upplifi áherslu á sköpun, hvort hugmyndir þeirra hafi vægi og hvaða skilning leggja þau í það að vera skapandi?

Ferlið á bakvið lokaverkefnið var gífurlega krefjandi og mikil vinna að baki en í senn ánægjulegt og gífurlega gefandi. Ég hlakka til að setja áfram mark mitt á tækifæri grunnskólanemenda til sköpunar sem kennari.

 

 

Viðfangsefni þessarar ritgerðar er að kanna verkgreinakennslu á grunnskólastigi og sýn nemenda með tilliti til grunnþáttarins sköpunar ásamt því að móta mína starfskenningu. Rannsóknin var tvíþætt annars vegar var um að ræða eigindlega rannsókn þar sem tekin voru viðtöl við starfandi textílkennara til að kanna viðhorf þeirra til sköpunar, frumlegra hugmynda nemenda og kennsluhætti þeirra. Viðtölin gáfu góða innsýn inn í áherslur þeirra á sköpun, hvernig þær birtust í kennslu og samspil þeirrar áherslu og hæfniviðmiða greinarinnar um tæknilega hæfni og færni.

Hins vegar var rannsókninni ætlað að vera mótandi fyrir starfskenningu mína og hafði ég hugmyndir um hverju mætti bæta við til þess að uppfylla betur skapandi nálgun í kennslu út frá kenningum og hugmyndafræði um hvað sköpun er og að efla ímyndunarafl og frumlegar hugmyndir nemenda. Einnig vildi ég að sýn nemenda myndi endurspeglast í niðurstöðum. Því framkvæmdi ég tilviksrannsókn og lagði verkefni fyrir nemendur í 5. og 9. bekk, hluti af niðurstöðum rannsóknarinnar hlutust úr ígrundun á minni kennslu og vettvangsdagbók.

 

 

Niðurstöður sýndu að viðmælendur mínir höfðu svipaða hætti í kennslu og vildu leggja áherslu á sköpun, tóku vel við frumlegum hugmyndum nemenda og leiðbeindu í hugmyndavinnu. Það sem ég vildi bæta við var að gefa nemendum meira svigrúm til þess að vinna að frjálsum verkefnum með frjálsa útkomu út frá hugðarefnum sínum. Niðurstöður úr tilviksrannsókn gáfu mis góðan árangur og að það er vandmeðfarið verk að draga fram sköpun nemenda í sjálfstæðum verkefnum, það þarfnast góðs ramma og uppsetningar.

Þessi rannsókn gaf mér góða innsýn inn í verkgreinakennslu á grunnskólastigi, hugmyndir að verkefnum og mótaði svo sannarlega mína starfskenningu. Báðar rannsóknir eru mitt framlag til þess að efla sköpun og sjálfstæði nemenda í list- og verkgreinum.

Leiðbeinandi: Hye Joung Park
30 ECTS Listkennslufræði MA
2026