Arkitektúrdeild
Deild
B.Arch · Útskriftarverkefni
Námsleið
2026
Ár
Um verkefnið

Verkefnið SÆ byggir á upplifun af náttúru Vestmannaeyja og hafinu sem umkringir eyjuna, þar sem gesturinn skynjar smæð sína gagnvart náttúröflunum. Út frá þeirri tilfinningu er sjónum beint að tengslum manns og sjávar, í samhengi við hvali og sögu svæðisins. Innblástur er sóttur til hvíthvala í Klettsvík og hugmyndin þróuð áfram í verbúð fyrir starfsfólk sem vinnur við umönnun hvalanna.

Hönnunin endurspeglar hvernig hvalir laga sig að umhverfi sínu hverju sinni, með áherslu á flæði, lýsingu, ró og efniskennd. Lýsing er stór og mótandi þáttur í upplifun hönnunarinnar í byggingunni, og hvernig notandinn skynjar sjálfan sig innan hennar. Með breytilegri birtu, skuggamyndun og sjónlínum myndastferðalag í gegnum húsið, sem er í senn líkamlegt og sjónrænt og skynrænt. Lýsingin leiðir gestinn áfram, dregur fram ákveðin augnablik og róar önnur, líkt og hreyfingar hafsins og dýptir þess.

The project SÆ is rooted in the visceral experience of the Westman Islands’ natural landscapes, where the vastness of the ocean highlights the profound scale of nature in relation to the individual.Inspired by the presence of beluga whales in Klettsvík, the project proposes a residency for their caregivers, exploring the intricate bond between humans, whales and the sea.

The design reflects whale’s fluid adaption to it’s environment, prioritizing flow, light, tranquility, and tactile materiality. Light is a significant defining element shaping how the user perceives both the spaces and their own presence within it. Through a choreography of shifting shadows, and strategic sightlines, the building facilitates a ,sensory journey. Light guides the user, accentuating certain moments while softening others, echoing the rhythmic movements and mysterious depths of the ocean.

Myndir: Claudio Parada Nunes

Hildur Ása Halldórsdóttir

01 / 04