Stafrún er nýtt letur fyrir rúnir á stafrænu formi. Þetta verkefni fæddist við spurninguna: Hvað ef rúnir hefðu fengið að þróast óhindrað? Rúnir eru elsta ritmál germanskrar tungu og bárust til Íslands með landnámsmönnum. Þrátt fyrir að latneska stafrófið hafi tekið yfir eftir kristnitöku og siðaskipti lifðu rúnirnar áfram á Íslandi lengur en annars staðar í Evrópu og þróuðust í séríslenskar rúnir. Letrið byggir á „hinum nýju íslensku rúnum,“ eins og þeim er lýst í bókinni Íslenskar rúnir – 1000 ára saga.
Stafrún is a new digital font for the Icelandic runes. This project was born from the question: What if runes had been allowed to develop unhindered? Runes are the oldest written language of the Germanic language and were brought to Iceland by settlers. Although the Latin alphabet took over after Christianization, the runes survived in Iceland longer than elsewhere in Europe and developed into Icelandic runes. The font is based on the “new Icelandic runes” as described in the book Icelandic Runes: A 1000-year history.
Myndir: Claudio Parada Nunes
Karolína Olsen Einarsdóttir
Stafrún


