Arkitektúrdeild
Deild
B.Arch · Útskriftarverkefni
Námsleið
2026
Ár
Um verkefnið

Sjómennska hefur lengi mótað samfélag og atvinnulíf í Vestmannaeyjum. Með henni fylgja efni sem hafa lokið hlutverki sínu og verða eftir sem úrgangur, þar á meðal fiskinet. Rás er verkefni sem vinnur með hringrás efna og nýjar leiðir til að nýta auðlindir sem hráefni í stað þess að enda sem rusl. Lagt er til að opnuð sé verbúð fyrir sjálfboðaliða og opið vinnurými þar sem unnið er með endurnýtingu og nýsköpun. Fiskinet eru hér skoðuð sem hráefni sem hægt er að umbreyta og nýta áfram í nýju samhengi. Hönnunin byggir á rannsókn á hrauni, þar sem rásir, áferð og flæði verða innblástur að formi og efnisnotkun. Verkefnið kannar hvernig efni getur haldið áfram í nýrri rás.

Fishing has long shaped the community and economy of Vestmannaeyjar. Consequently, materials that have reached the end of their use remain as waste, including fishing nets. Rás is a project focused on circular recycling, exploring new ways to use materials as resources rather than letting them become waste.

The proposal envisions a volunteer base alongside an open workspace dedicated to reuse and creative innovation. Discarded fishing nets are treated not as waste, but as a valuable material that can be reworked and given new purpose.

The design draws inspiration from lava formations, where its channels, textures, and flow shape both form and material use. The project explores how materials can continue along a new path.

Myndir: Claudio Parada Nunes

Helena Ósk Kristjánsdóttir

Rás
01 / 04